sunnudagur, 20. september 2009

Hvað ætli þið að gera á morgun!?


...bara affí við ætlum í heimsreisu!:) Íííhaaa....eitthvað sem við erum búnar að tala um lengi, frásögn af ferðaplani sem var farið að hljóma eins og vel æfð rulla og eitthvað sem var planað eftir langan tíma, svo KA-BÚMM og brottför á morgun! Dææmigert alveg fyrir mig að skella mér í heimsreisu þegar flugfreyjur áætlunarflugs Akureyrar og Reykjavíkur hafa ósjaldan þurft að halda í hendina á mér! ...jæja engar áhyggjur ef við gleymum að blogga, það á eftir að fréttast af ferðum okkur gegnum mbl.is vegna taugaveiklunar um borð í flugvélum!

Jæja ekki leiðinlegt plan okkar Guddu. Næstu 2 mánuðir munu líða í Perú, Bólivíu, Argentínu, Braselíu og chile. Jólakransagerðin mun fara fram í Nýja Sjálandi en ragetturnar verða aftur á móti sprengdar og við Guðný verðum árinu eldri við hátíðlega athöfn í Ástralíu. Snemm-þorrinn verður svo blótaður í Singapore!

Oll ræt, allt komið ofaní tösku, já nema mynd af dönsku konungsfjölskyldunni og Ólafi Ragnari. Morgundagurinn fer í að húrra mynd af heiðursfólkinu í ramma og finna þar til gerðan hekldúk undir þær.

Okkur langar svo mikið að hafa svona þema í ferðinni, ef einhver lumar á einhverri roooosalegri hugmynd. Eitthvað sem maður gerir eða tekur mynd af! Endislega liggið ekki á ykkar hugmynd!

Góðar stundir gott fólk, endalaus ást frá okkur Guðnýju...

6 ummæli:

Halldís sagði...

æði pæjur!
hlakka til að fylgjast með ævintýrinu :)
knús Halldís

Elín..... Frú Hansen sagði...

Hlakka til að fylgjast með ykkur, þið eigið eftir að skemmta ykkur konunglega. Mun hugsa mikið til ykkar, og já Hildur mín það er bannað að labba ein heim af einhverju djammi okei??. En knús frá okkur Elín, Þór og Birgitta Marín

Anna Rut sagði...

Ohhh þetta er svo geggjað hjá ykkur ;D Hlakka sko til að lesa ferðasöguna ;)

Nafnlaus sagði...

Hæ! ég er með hugmynd af myndatöku á hverjum stað eru útihurðir. Og fá hvað ég hlakka til að heyra frá ykkur á fyrsta staðnum :) Og ekki vera flughrædd það er svo gaman að fljúga ;)
Ragga

Heiður sagði...

Góða, góða, ofsalega góða ferð elskurnar mínar!! Ég á eftir að hugsa mikið til ykkar.
Munið að halda dagbók!!! Bloggið verður kannski dagbók...en ég held að gamaldags dagbók sé ekki svo galið. Í mínu litla 5 vikna ferðalagi fóru borgirnar að renna soldið saman og þá er gott að hafa dagbókina.

Útidyrahugmyndin hljómar vel. Önnur hugmynd sem gæti verið meiri áskorun er að taka mynd með lögregluþjóni í hverju landi.

Nafnlaus sagði...

Góða ferð elskurnar!! ég sé ykkur í Suður Ameríkunni! :) verið duglegar að blogga! Líst vel á þemun með hurðinni en jafnvel enn betur með lögregluþjóni. Einnig finnst mér agalega skemmtilegt að prófa þjóðardrykki viðkomandi lands og taka af þeim mynd. Hlakka til að fylgjast með ykkur! luv Berglind