Mate de Coca - Coca teið fræga sem Perubúar drekka í gríð og erg!
Hildur, Eydís og Guðný fyrir framan gamla Incapíramída
Hildur og Inca cola... sem bragðast eins og eitthvað hubba bubba tyggjó eða barnatannkrem:)
Fátæktin í Lima
Alveg að fara að lenda í Lima og þá nánast búnar að fljúga yfir hálfan hnöttinn!
Kæri Ólafur Ragnar, kæra þjóð!
Eftir samanlagða 15 tíma í háloftunum gátum við loksins látið henda okkur úr í Lima í Perú! Loksins komnar...hinum megin á hnettinum, ótrúlegt og ég trúi því ekki enn! Við byrjuðum á því að ganga í fangið á tveimur perúskum dömum með andlitsmaska sem dreyfðu bæklingum um svínainflúensu fyrirbyggjandi atriði, síðar tókum við eftir því að flestir starfsmenn voru íklæddir slíkum andlitsmaska. Eftir að búið var að stimpla okkur sundur og saman og dönsku tilboðsbakpokarnir komnir á hrygginn gengum við inní kaosina fyrir utan flugvöllinn. Það eina sem glamraði í hausnum á manni voru öll viðvörunarorð foreldra okkar og fjölskyldu um að þarna væri mannlífið einskis virði, steliþjófar á öllum hornum með svínainflúensuglassúri! Jæja en útfrá skotheldum taxaleiðbeiningum Eydísar komumst við heilu og höldnu í Calle Porta þar sem hún býr!
Öss hvað það var gaman að vakna og sjá Lima í dagsljósi. Traffíkin er ein stór kaos, flautur og bíb! Við gerðum okkur ferð í lyfjafyrirtækið þar sem Eydís er búin að vera vinna síðastliðið árið en þar hittum við Christian sem vildi endilega bjóða okkur út um kvöldið, sem var bara í lagi!:)Eftir stutt stopp þar tók hún okkur að bragða á Perúskum mat. Það má geta þess að perúskur matur er stolt þjóðarinnar, það er það fyrsta sem þeir spyrja að og hafa áhuga á að vita hitti þeir nýtt fólk. Þeir lúra á eeendalaust mikið af kartöflum eða um 2000 mismunandi tegundum, svo þarna á þessum matsölustað var flest kratöflu hitt og kartöflu þetta. Mjög gott. Guðný var ekki lengi að reka augun í Inca Kólað á menunum og linnti ekki látum fyrr en hún var komin með eitt slíkt í hendina:) Hahaha...já hérna þarf maður líka að nefna það sérstaklega vilji maður fá drykkinn sinn kaldan, flaskið ekki á því!
Jæja við röltum um hverfin í kringum Eydísi, fórum í moll sem byggt er inní klettana við ströndina, fórum í ástargarðinn, þar sem maður datt endalaust um elskandi pör á bekkjum, endalaus hamingja þar. Um kvöldið fórum við með Christian á ótrúlega flottan stað þar sem við fengum að bragða á ótrúlega góðum perúískum lystaukum á stað sem var staðsettur við pre-incarústir. Myndin af okkur þremur að ofan er tekin þar. Þar fengum við að bragða á Coca mate, en það er te gert er úr kókablöðum og þar er sama hráefni og kókaín er m.a. gert úr,! Ússss....gaman að því!
Kíktum á nokkra staði, lærðum smá salsa, dönsuðum smá salsa, lærðum að drekka ofur perúískan kokteil (Pisco sour), drukkum fleiri perúískan kokteil, fórum í sjoppu í leit af lakkrís, fundum hann ekki, hittum strák með gítar, rifum af honum gítarinn, tókum Jolene og house of the rising sun fyrir gesti og gangandi og fórum svo heim. Bara kátar í Lima. Ekki eins kátar í dag, sváfum lengi og vorum lengi af stað út. Kíktum á útimarkað, fann afbrags panflautu fyrir pabba, Guðný fjárfesti í minnigerð af leirflautu...spurning hvort ég þurfi að fela hana á tímapunkti!:) Við Guðný erum annars agalega duglegar að halda spænsku frasa bókinni á lofti og rífum af okkur spænskuna hægri vinstri...með misgóðum árangri!:) Jæja ætla að láta þetta gott heita í bili. Erum á leið til Cusco á morgun, eigum pantaða 22 klst VIP rútuferð þangað. Þar á víst að vera lazy boy sæti, rútufreyja sem gefur okkur eitthvað að borða og svona....við erum mjöööög forvitnar og spenntar fyrir þeirri ferð....skellum myndum af því.
Heimshamingja frá okkur Guðnýju....
Abrazos,
Hildur Incadottir
9 ummæli:
VIP rútuferð - þarf maður þá ekki bara að vera með fartölvuna á lofti og voða bissý???
Njótið vel (og lengi) hehe.
Risaknús :)
Ohhh hvað þetta er frábært hjá ykkur :D Knús og kossar og góða skemmtun í VIP rútuferðinni ;)
Oh stelpur thetta hljómar svo vel hjá ykkur !! Læt mig dreyma um framandi heima yfir bókunum... :) Lýst vel á thetta Coca-the - veitti líklega ekki af einu slíku í augnablikinu! Njótid hvers einasta dags á medan thid erud ad ferdast thví trúid mér thid munud sakna thess ! Knus og kossar frá DK
ÁSTA
væriru ekki til í að taka nokkur lauf með heim.... svona í kokteilana okkar.... strawberry cokkeri :) krammar e og p
Mikið er þetta spennandi hjá þér senorita Incadóttir og ykkur hinum! Les bloggið fyrir Aðalbjörgu nöfnu þína og kem til með að gera. Svo við fylgjumst með mæðgurnar. Gangi ykkur vel! Sirrý
Frábært að heyra frá ykkur, njótið lífsins. Knús og koss, Heiðrún frænka
GAAAARG!!! Ævintýrið hafið. Gvöööð, hvað ég hugsa mikið til ykkar. Treysti því að þið knúsið hver aðra í klessu allar fjórar frá mér!
Góða rútuferð!
Girls girls!!! Helvíti byrjar þetta allt vel! :) tókuð þið ekki örugglega mynd af Lima drykknum? Maður bíður æsispenntur eftir fleiri sögum! Vona að þið eigið góða rútuferð, bíð spennt eftir að heyra hvernig þetta VIP rútusæti verður! hihihi...
hugs
Vooooo vorum ad koma til Cusco og stodnum alveg a ondinni thvi vid erum svo hatt yfir sjavarmali...hreyfum okkur alveg i slowmotioni!
Asta: VIP rutuferdin var aaawwesome!! Thvilik thaegindi, kvoldmatur, biomyndir thjonusta og eg veit ekki hvad og hvad!:)
Eva og Asta: Eg geri allt sem i minu valdi stendur til ad faera ykkur cocalauf!!!! ...thad er nu reyndar maelt med thvi ad vid seum ad drekka thad eda britja thad herna til ad vinna a svimanum utaf loftinu!
Sirry og amma: gaman ad thid seud ad fylgjast med, vid skellum inn nyju bloggi a morgun hedan fra cusco:)
Knus a ykkur oll, thakk fyrir ad fylgjast med!
Skrifa ummæli