laugardagur, 17. október 2009

Ferdin hingad til og Valle de la Luna



Eg akvad ad koma med sma yfirlit yfir ferdalagid thvi vid erum adallega bunar ad segja fra ferdunum sem vid hofum farid i en thad er sko ymislegt sem gerist thess a milli. Nu erum vid bunar ad vera a ferdalagi i naestum 4 vikur, Hildur reyndar lengur thvi hennar ferdalag byrjadi a Islandi. Ferdalagid er buid ad ganga svakalega vel hingad til og vonandi verdur thad bara eins afram. Vid erum bunar ad vera i Peru, Boliviu og erum nuna staddar i Mendoza i Argentinu.

I Peru vorum vid nokkra daga i Lima, svo forum vid til Cuzco thadan sem haegt er ad fara i ferd til Machu Picchu eins og vid gerdum og sidasta stoppid var Puno vid Lake Titicaca, thar sem vid forum i aedislegu 2 daga ferdina sem eg maeli med ad allir fari i sem aetla ser a annad bord ad skoda eyjurnar a vatninu. I Puno hittum vid svo restina af ferdafelaginu, Eydisi og Eyglo. Thaer hofdu lent i svakalegum rutuhremmingum og maettu 7 timum of seint til okkar... enda vorum vid ordnar vel hraeddar um thaer... forum ad imynda okkur allt sem gat hafa komid fyrir thaer!! En thaer komu heilar a holdnu, okkur til mikillar gledi.

Bolivia tok a moti okkur, fyrst i Copacabana, med ca. 1 klst stoppi en svo hofudborgin La Paz. Bolivia er mjog fataekt land og thad saum vid serstaklega vel i La Paz. A thessum 3 dogum sem vid vorum i La Paz rakumst vid t.d. aldrei a supermarkad (bud med venjulegum matvorum), veitingastadir voru af mjog skornum skammti og folk var endalaust ad betla. Vid vorum s.s. ekkert serstaklega hrifnar af thessari borg. Thad var ekki mikid haegt ad gera eda sja nema fara a markadi, og thad var sko nog af theim. Thad jakvaeda reyndar vid markadina i La Paz, er ad thar faest allt, gjorsamlega allt. Fot a alla fjolskylduna, allskonar matur og bara allskonar dot. Okkur tokst ad versla orlitid a morkudunum og tha serstaklega a nornamarkadnum. Thar voru allskonar lovepoison og heillaglos keypt. Thetta a s.s. ad veita okkur gledi, hamingju og velgengni i lifinu (astarlifinu;)).
La Paz er greinilega soldid hrifid af Islandi thvi a nornamarkadnum rakumst vid a litla islenska fana til ad sauma a bakpoka. Vid Hildur vorum ekki lengi ad skella okkur a tvo slika og skelltum theim svo a bakpokann okkar. Nu erum vid s.s vel merktar hvert sem vid forum. A einum bladabasnum saum vid svo krossgatublad sem var med Olafi Ragnari Grimssyni a forsidunni. Thetta fannst okkur thvilikt fyndid og thegar vid forum ad fletta bladinu voru ymsar landslagsmyndir fra Islandi i bladinu og mynd af Eidi Smara lika:)


Her sest Eydis glugga i thetta flotta krossgatublad.

Hostelid i La Paz var reyndar mjog gott og thar var bar sem vid skemmtum okkur konunglega a. Hildur laerdi Salsa og vid tokum thatt i pubquizi med frekar draemum arangri... en thad var gaman og thad er thad sem skiptir mali.

Naesta og sidasta stoppid i Boliviu var svo Uyuni, thar sem planid var ad skoda salteydimorkina og halda svo strax forinni afram til Argentinu. Thetta plan raskadist adeins thvi i kringum Uyuni var verkfall vegavinnumanna sem lokudu ollum ut- og inngonguhlidum i baeinn. Vid vorum med pantadan mida i naeturlest en lestar gengu ekki heldur thannig vid akvadum ad taka thessu med ro og pontudum bara extra nott a hoteli. Um kvoldid saum vid svo fullt fullt af ferdamonnum standa a adaltorginu i baenum og voru ad reyna ad skipuleggja flotta ur borginni, vid vorum mjog fegnar okkar akvordun enda var mjog kalt tharna um kvoldid og ekki miklar likur a ad thetta taekist hja theim. Naesta morgun var Eyglo, ferdafelagi okkar, ekki alveg sjalfri ser som og eftir ad hafa reynt ad spurja hana einfaldra spurninga akvadum vid ad hun thyrfti sjukrahus hjalp. Vid Hildur barum hana thvi nidur 2 haedir og inni taxa sem sidan keyrdi okkur a spitalann. Thad kom svo i ljos ad Eyglo var med hafjallaveiki a hau stigi og thurfti surefni. Sem betur fer lagadist hun mjog fljott eftir surefnisgjofina og eg fekk sma innsyn i spitalalifid i Uyuni. Ekki alveg til ad hropa hurra fyrir enda i mjog fataeku landi. Thad var thvi lan i olani ad verkfallid hafdi verid thvi ekki er gott ad segja hvernig Eyglo hefdi verid i naeturlestinni. Vid hittum sidan nokkra ferdamenn a horni sem sogdu okkar fra aformum sinum um ad taka rutu snemma naesta morguns og komast thannig framhja lokununum. Akvadum vid ad skella okkur med theim og heppnadist thad fullkomlega. Reyndar lentum vid i einni verstu rutu sem sogur fara af, en sem betur fer adeins i um 3 tima ferd. Komum svo skitugar og threyttar til landamaerabaejsins Villazon i Boliviu. Thar gistum vid eina nott og attum svo pantada rutu daginn eftir til Salta i Argentinu. Thad er 1 klst munur a Boliviu og Argentinu og vid vorum svo glaerar ad okkur grunadi ekki ad rutumidinn okkar gaeti verid a Argentinskum tima thar sem vid keyptum hann i Boliviu... en 1 skef var tharna a milli!!! Vid lentum thvi i thvi daginn eftir ad missa af rutunni thvi vid komum klukkutima of seint!! Thetta endadi tho allt vel og vid vorum svo heppnar ad vid fengum ad nota midann okkar i naestu rutu a eftir.

Argentina er aedi. Mikill munur a Argentinu og Boliviu, enda Argentina mun rikara land..... en sem jakvaedur punktur fyrir Island tha lenti Argentina vist i svakalegu efnahagshruni fyrir ekki svo morgum arum og eru nu alveg komin upp ur thvi... thannig thad er enntha von fyrir Island, viiii:)
Fyrsta stoppid var Salta sem er aedisleg borg. Thar forum vid i sightseeing um borgina a 2 haeda straeto og sidan i klaf yfir borgina. Dagarnir i Salta voru rolegir en godir og alltaf gott ad slaka adeins a. Reyndum einu sinni ad fara a djammid en forum ekki a neinn skemmtistad. Midbaerinn leit samt vel ut.
San Juan var naesta stopp og thar forum vid i ferd til Valle de la Luna, sem thydir Moonvalley eda Tungldalurinn thvi hann a vist ad likjast landslaginu a tunglinu mjog mikid.

I thessum dal eru adeins jardlog fra Jurassic timanum... sem var fyrir moooorgum arum sidan. Jurrassic timabilid skiptist svo upp i 7 log en tharna saum vid adeins 3 log... en otrulega flott hvernig madur ser skiptingarnar i landslaginu... mismunandi litir eftir jardlogum. Ef thid rynid vel i myndina sjaid thid rautt, gratt og brunt lag. Thetta er orugglega mjog spennandi stadur fyrir jardfraedinga en fyrir okkur vitleysingana var bara gaman ad geta sagst hafa farid thangad. Tharna voru sidan risaedlur adur en allt for undir sjo, s.s. engar risaedlur lengur! En vid saum bein a einhverju safni sem var tharna i dalnum, very interesting!!

Nu erum vid svo staddar i Mendoza sem er lika frabaer baer. Vid erum alveg ordnar astfagnar af Argentinu. Forum i vinsmokkun i gaer sem Hildur aetlar ad skrifa betur um seinna.
Vona ad thid hafid thad gott og endilega verid dugleg ad kommenta, gaman ad sja hver er ad fylgjast med okkur:)
Knus, Gudny.

5 ummæli:

Unknown sagði...

Hola ninas! Hildur var að lesa fyrir Aðalbjörgu nöfnu þína! Hún sér ykkur f. sér borðandi nautasteikur í Argentínu en ég aftur á móti dansandi tango ... í Buenos Aires!?! Hasta la vista! Sirrý og amma Aðalbjörg

Nafnlaus sagði...

hahaha en gaman! jajaja 5 kilo af steik eru komin beint framan a mig...eintom hamingja:) Svoo gaman ad thu lest bloggid fyrir ommu, bara yndislegt:) KNus og kossar til ykkar

Hildur

Nafnlaus sagði...

Hæ skvísur,
vildi bara kvitta fyrir mig, farið vel með ykkur:)
Knús Katrín

Nafnlaus sagði...

Hæ Guðný og ferðafélagar. Gaman að fá að fylgjast með ykkur. Nú eruð þið komnar út fyrir það sem ég hef farið. Frábært þegar ungt fólk ferðast svon aum heiminn. Við hjónin erum svo á leið til Egyptalands í næstu viku og hlökkum mikið til. Góða ferð áfram.
Kveðjur Sigga Kristjáns.

Guðný sagði...

Takk fyrir Katrin og Sigga. OG aedislegt med Egyptaland... thad verdur klarlega tekid i naestu reisu hja mer:)