sunnudagur, 27. september 2009

Cuzco, Peru

Eftir adeins 20 tima rutuferd tok Cuzco vel a moti okkur. Sma svimi, treyta og ondunarerfidleikar er sko ekkert til ad grenja yfir... alveg edlilegt segja reyndustu menn. Og kallinn sem sat vid hlidina okkur i rutunni lagdi okkur lifsreglurnar adur en vid yfirgafum rutuna.... drekka mikid af Mate de Coca(Coca teinu fraega). Vid vorum sko VIP, eins og Hildur sagdi, og innihelt tad lazyboy sofa, tjonustupiu og kvold- og morgunmat. Voda, voda fint allt saman. Sjalf rutuferdin var agaet en hossurnar og beygjurnar voru samt alveg i mesta lagi... Vid keyrdum nattlega yfir Andes fjallgardana (eda allavega einhver rosaleg fjoll) tannig ad tad er kannski ekki nema edlilegt ad rutubilstjorinn hafi tekid hverja U-beygjuna a eftir annari. A leidinni upp fjollin byrjudum vid ad finna fyrir tvi ad okkur vantadi surefni og byrjudum osjalfratt ad turfa ad taka djupa innondun odru hvoru, frekar skritin tilfinning en vandist smatt og smatt.

Jaeja nog um rutuferdina, fyrsti dagurinn i Cuzco var voda rolegur. Rolltum adeins um og tokst ad sjalfsogdu ad villast a fyrsta degi, en ekkert alvarlegt.
Vid erum sidan bunar ad skoda midbae Cuzco ut og inn og adalmidbaerinn er i kringum Plaza de Armas (Torg táranna). Til ad koma med sma fraedslumola ta var Cuzco hofudborg Inkanna, en tad var samfelag sem talid var eitt thad best skipulagda samfelag i heimi. Machu Picchu var svo heilagur stadur teirra tar sem merkilegasta folkid bjo, t.d. prestar, handverksmenn, tjonar og svo teirra mikilvaegast, las mamacunas, eda jomfrurnar sem gafu lif sitt til solgudanna. Ef natturuhamfarir urdu, t.d. jardskjalfti, heldu Inkarnir ad solgudarnir vaeru ad hefna sin a einhverju og til ad frida ta fornudu Inkarnir fallegasta og mest framfarnasta barninu. Foru med tad a haesta tindinn, naest solgudunum, og drapu tad tar.

Cuzco er i dag einn vinsaelasti turistabaerinn i Peru, tvi allir vilja ju sja Machu Picchu. Her er rosa mikid areiti af solumonnum og straklingum sem vilja pussa skona okkar.... vid erum tess vegna med tvo "useless information" handa ykkur. A Plaza de Armas er ad minnsta kosti einn a minutu sem reynir ad selja teir vorur eda tjonustu.... og tu faerd ennta meira onaedi fra skopussurum ef tu maetir i opussudum skom! Hildur brenndi sig a tessu i dag og tad gjorsamlega sat um okkur ungur drengur sem vildi endilega pussa skona hennar.

Eg er sidan buin ad fjarfesta mer i Charango gitar, en tad var tad eina sem eg var buin ad akveda ad kaupa adur en eg kom hingad. Tokst ad prutta ur 250 soles nidur i 150 soles, eda um 6000 isk. Og svo sidast en ekki sist erum vid bunar ad fjarfesta i ferd til Aguas Caliente a morgun. Gongum sidan snemma a tridjudagsmorgun upp ad Machu Picchu og eydum deginum tar. Raes kl. 4 tvi tad er vist alveg geggjad ad sja solaruppras vid Machu Picchu. Skellum inn myndum af tvi vid taekifaeri.

Nog um fraedslumola i dag.
Hasta la vista,
Gudny.

fimmtudagur, 24. september 2009

Lima Perú 1.stopp hjá Eydísi


Mate de Coca - Coca teið fræga sem Perubúar drekka í gríð og erg!


Hildur, Eydís og Guðný fyrir framan gamla Incapíramída


Hildur og Inca cola... sem bragðast eins og eitthvað hubba bubba tyggjó eða barnatannkrem:)


Fátæktin í Lima


Alveg að fara að lenda í Lima og þá nánast búnar að fljúga yfir hálfan hnöttinn!


Kæri Ólafur Ragnar, kæra þjóð!
Eftir samanlagða 15 tíma í háloftunum gátum við loksins látið henda okkur úr í Lima í Perú! Loksins komnar...hinum megin á hnettinum, ótrúlegt og ég trúi því ekki enn! Við byrjuðum á því að ganga í fangið á tveimur perúskum dömum með andlitsmaska sem dreyfðu bæklingum um svínainflúensu fyrirbyggjandi atriði, síðar tókum við eftir því að flestir starfsmenn voru íklæddir slíkum andlitsmaska. Eftir að búið var að stimpla okkur sundur og saman og dönsku tilboðsbakpokarnir komnir á hrygginn gengum við inní kaosina fyrir utan flugvöllinn. Það eina sem glamraði í hausnum á manni voru öll viðvörunarorð foreldra okkar og fjölskyldu um að þarna væri mannlífið einskis virði, steliþjófar á öllum hornum með svínainflúensuglassúri! Jæja en útfrá skotheldum taxaleiðbeiningum Eydísar komumst við heilu og höldnu í Calle Porta þar sem hún býr!
Öss hvað það var gaman að vakna og sjá Lima í dagsljósi. Traffíkin er ein stór kaos, flautur og bíb! Við gerðum okkur ferð í lyfjafyrirtækið þar sem Eydís er búin að vera vinna síðastliðið árið en þar hittum við Christian sem vildi endilega bjóða okkur út um kvöldið, sem var bara í lagi!:)Eftir stutt stopp þar tók hún okkur að bragða á Perúskum mat. Það má geta þess að perúskur matur er stolt þjóðarinnar, það er það fyrsta sem þeir spyrja að og hafa áhuga á að vita hitti þeir nýtt fólk. Þeir lúra á eeendalaust mikið af kartöflum eða um 2000 mismunandi tegundum, svo þarna á þessum matsölustað var flest kratöflu hitt og kartöflu þetta. Mjög gott. Guðný var ekki lengi að reka augun í Inca Kólað á menunum og linnti ekki látum fyrr en hún var komin með eitt slíkt í hendina:) Hahaha...já hérna þarf maður líka að nefna það sérstaklega vilji maður fá drykkinn sinn kaldan, flaskið ekki á því!
Jæja við röltum um hverfin í kringum Eydísi, fórum í moll sem byggt er inní klettana við ströndina, fórum í ástargarðinn, þar sem maður datt endalaust um elskandi pör á bekkjum, endalaus hamingja þar. Um kvöldið fórum við með Christian á ótrúlega flottan stað þar sem við fengum að bragða á ótrúlega góðum perúískum lystaukum á stað sem var staðsettur við pre-incarústir. Myndin af okkur þremur að ofan er tekin þar. Þar fengum við að bragða á Coca mate, en það er te gert er úr kókablöðum og þar er sama hráefni og kókaín er m.a. gert úr,! Ússss....gaman að því!
Kíktum á nokkra staði, lærðum smá salsa, dönsuðum smá salsa, lærðum að drekka ofur perúískan kokteil (Pisco sour), drukkum fleiri perúískan kokteil, fórum í sjoppu í leit af lakkrís, fundum hann ekki, hittum strák með gítar, rifum af honum gítarinn, tókum Jolene og house of the rising sun fyrir gesti og gangandi og fórum svo heim. Bara kátar í Lima. Ekki eins kátar í dag, sváfum lengi og vorum lengi af stað út. Kíktum á útimarkað, fann afbrags panflautu fyrir pabba, Guðný fjárfesti í minnigerð af leirflautu...spurning hvort ég þurfi að fela hana á tímapunkti!:) Við Guðný erum annars agalega duglegar að halda spænsku frasa bókinni á lofti og rífum af okkur spænskuna hægri vinstri...með misgóðum árangri!:) Jæja ætla að láta þetta gott heita í bili. Erum á leið til Cusco á morgun, eigum pantaða 22 klst VIP rútuferð þangað. Þar á víst að vera lazy boy sæti, rútufreyja sem gefur okkur eitthvað að borða og svona....við erum mjöööög forvitnar og spenntar fyrir þeirri ferð....skellum myndum af því.
Heimshamingja frá okkur Guðnýju....

Abrazos,
Hildur Incadottir

sunnudagur, 20. september 2009

Hvað ætli þið að gera á morgun!?


...bara affí við ætlum í heimsreisu!:) Íííhaaa....eitthvað sem við erum búnar að tala um lengi, frásögn af ferðaplani sem var farið að hljóma eins og vel æfð rulla og eitthvað sem var planað eftir langan tíma, svo KA-BÚMM og brottför á morgun! Dææmigert alveg fyrir mig að skella mér í heimsreisu þegar flugfreyjur áætlunarflugs Akureyrar og Reykjavíkur hafa ósjaldan þurft að halda í hendina á mér! ...jæja engar áhyggjur ef við gleymum að blogga, það á eftir að fréttast af ferðum okkur gegnum mbl.is vegna taugaveiklunar um borð í flugvélum!

Jæja ekki leiðinlegt plan okkar Guddu. Næstu 2 mánuðir munu líða í Perú, Bólivíu, Argentínu, Braselíu og chile. Jólakransagerðin mun fara fram í Nýja Sjálandi en ragetturnar verða aftur á móti sprengdar og við Guðný verðum árinu eldri við hátíðlega athöfn í Ástralíu. Snemm-þorrinn verður svo blótaður í Singapore!

Oll ræt, allt komið ofaní tösku, já nema mynd af dönsku konungsfjölskyldunni og Ólafi Ragnari. Morgundagurinn fer í að húrra mynd af heiðursfólkinu í ramma og finna þar til gerðan hekldúk undir þær.

Okkur langar svo mikið að hafa svona þema í ferðinni, ef einhver lumar á einhverri roooosalegri hugmynd. Eitthvað sem maður gerir eða tekur mynd af! Endislega liggið ekki á ykkar hugmynd!

Góðar stundir gott fólk, endalaus ást frá okkur Guðnýju...