sunnudagur, 14. september 2008

Fyrsti fundur búinn og allt að fara í gang!

Já, Hildur kom til Odense yfir helgina svo við gætum farið yfir helstu atriði sem þarf að byrja að skipuleggja sem fyrst. T.d. flug og sprautur og fleira.
Fundur var settur og voru allir mættir, góð mæting;)
Það kom þó ekki mikið fram á fundinum annað en að nú þarf að fara í rannsóknarvinnu og ætla ég (Guðný) að fara á Kilroy travel skrifstofuna í næstu viku og fá tilboð.
Ég bætti annar við fullt af linkum hér við hliðiná. Linkurinn "Around the world flights" er heimsíða sem selur "opna" flugmiða. Þetta þurfum við að skoða og sjá hvað hentar okkur best. Pakkinn The great escapade er pakki sem Friðgeir og hans team tók í þeirra heimsreisu. Þá er fyrirfram ákveðnir staðir sem fljúga á til og frá en hægt er að breyta dagsetningum að vild án aukagjalds, eina skilyrðið að það sé laust í það flug! Og maður má ekki fara yfir 39 þús mílur... en það á víst að duga vel í svona heimsreisu.
Ég ætla að skoða fleiri pakka og sjá hvort hægt er að finna pakka þar sem S-Ameríka er möguleg líka.
Svo þarf líka að skoða hvað Dragoman hefur uppá að bjóða, en planið er að taka ferð með þeim í S-Ameríku.
Og já "til sidst" þá er planið að fara til S-Ameríku, Asíu og Ástralíu... og jafnvel smá Mexíkó og California.
Jæja gott í bili og ég ætla að skrifa meira þegar ég hef rannsakað meira.
Og eitt meira, Wikitravel er víst rosa góð síða til að verða góður í landafræði og fræðast um hina ýmsu staði í heiminum, þannig getum við fundið hvaða staði okkur finnst mest spennandi.
Ciao!

Engin ummæli: