sunnudagur, 30. ágúst 2009

Roadtrip um Ástralíu

Hérna er hugmynd frá mér að road trip-i. Hildur veit ekkert um þetta þannig hún verður bara að samþykkja allt sem mér dettur í hug, hehe.

Ekki nema 10 þús km... er það nokkuð of mikið fyrir 31 dags ferðalag??

fimmtudagur, 27. ágúst 2009

Hvernig er staðan?

Við erum búin að kaupa alla aðalflugmiða.
Planið hljómar svona:

21. sept: Århus - London
22. sept: London - Madrid
22. sept: Madrid - Lima (Peru)
1. des: Santiago (Chile) - Auckland (NZ)
26. des: Queenstown (NZ) - Sydney
1. feb: Brisbane - Singapore
3. feb: Singapore - London

Eigum þá bara eftir að fjárfesta í eins og einum flugmiða innan S- Ameríku og svo flug frá London og heim til DK:) Stefnum á að lenda heima igen þann 4. febrúar 2010... vá skrítið að skrifa 2010, finnst eins og það sé alltof langt fram í framtíðinni til þess að skipuleggja eitthvað svona!!

Hildur er ennþá uppá fjöllum en verður víst bara nokkra daga í viðbót og þá fer allur lokaundirbúningur í gang. Annars erum við alveg komin vel á veg og nánast ekkert eftir nema, pakka, flytja, pakka og fljúga!

Annars bara svona smá update til að segja frá planinu og planið er svo að skrifa á þessa síðu í heimsreisunni og jafnvel setja inn myndir líka ef það er auðvelt... eða þá bara á facebook... því það er ekki svo flókið!

Ekki meira í bili, Carpe Diem:D